NOMA fyrir fyrirtæki

Gefðu starfsfólki, viðskiptavinum og gestum ilm sem gleður. NOMA í Kringlunni setur saman fallegar gjafir og ilmlausnir fyrir fyrirtæki af öllum stærðum – jólagjafir, sumargjafir, gjafir við tímamót og ilm fyrir gististaði.

Fá tilboð

Ilmkerti og afgreiðsla í NOMA Kringlunni

Gjafir fyrir starfsfólk

Jólagjafir, sumargjafir, afmæli og tímamót. Veldu pakka eða settu saman þína eigin gjöf – við hjálpum þér að velja.

Pakki Innihald Verð
Kveðja Froðusápa + Vanilla Black ilmstangir (85 ml) 4.990 kr.
Hlýja 3 þráða ilmkerti + froðusápa 9.990 kr.
Heima 3 þráða ilmkerti + NOMA ilmstangir (150 ml) + froðusápa 13.990 kr.
Gjafakort Starfsmaðurinn velur sjálfur – í Kringlunni eða á noma.is Þú velur upphæð

Við getum líka sett saman gjöf eftir þínum óskum og þinni fjárhæð – t.d. kerti og sápu, ilmstangir og sápu eða líkamsvörur.

Magnafsláttur

  • 10 gjafir eða fleiri: 5% afsláttur
  • 25 gjafir eða fleiri: 10% afsláttur
  • 50 gjafir eða fleiri: 15% afsláttur

Innifalið

  • Kort með kveðju frá fyrirtækinu
  • Frí afhending á höfuðborgarsvæðinu (10 gjafir eða fleiri) og frí heimsending um allt land yfir 19.990 kr.
  • Reikningur á kennitölu fyrirtækis
  • Gjafainnpökkun í boði ef óskað er

Jólin 2026: Pantanir fyrir 1. desember tryggja afhendingu fyrir 18. desember.

Fyrir hótel, gistiheimili og íbúðaleigu

Froðusápur og innstunguilmir í NOMA Kringlunni

Góður ilmur er hluti af upplifun gesta. Við útvegum gististöðum og Airbnb-umsjónaraðilum:

  • Froðusápur fyrir baðherbergi og eldhús
  • Ilmstangir og áfyllingar fyrir móttöku, ganga og íbúðir
  • Ilmtæki í innstungu og áfyllingar
  • Velkomugjafir fyrir gesti og smærri gjafir fyrir fastagesti

Við bjóðum magnverð og reglulegar sendingar eftir þörfum. Hafðu samband og við gerum tilboð.

Fáðu tilboð

Segðu okkur í stuttu máli hvað þú ert að hugsa og við svörum innan eins virks dags. Einnig má hringja í 551-2001 eða senda á noma@noma.is.