Skilmálar
Þessir skilmálar gilda um öll kaup á vörum í netverslun NOMA. Með því að staðfesta pöntun samþykkir kaupandi þessa skilmála.
Seljandi
NOMA ehf.
Kt. 440526-0630
VSK-nr. 162085
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Netverslunin selur eingöngu innan Íslands og kaupandi þarf að vera að minnsta kosti 16 ára eða hafa samþykki forráðamanns.
Verð
Öll verð á noma.is eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) og eru með virðisaukaskatti.
NOMA áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar innsláttar- eða verðvillur og uppfæra verð án fyrirvara. Verðbreytingar hafa ekki áhrif á pantanir sem þegar hafa verið staðfestar.
Greiðslur
Allar greiðslur fara í gegnum örugga og dulkóðaða greiðslugátt.
Við tökum við helstu greiðslukortum og þeim greiðsluleiðum sem í boði eru við greiðslu í netverslun.
Afhending
Pantanir eru sendar daglega með Póstinum og Dropp. Afhending tekur yfirleitt 1–3 virka daga frá því að pöntun er staðfest.
Við sendum pantanir um allt Ísland og viðskiptavinur velur sendingarmáta í greiðsluferlinu.
Frí heimsending gildir við kaup fyrir 19.990 kr. eða meira.
Skilaréttur
Viðskiptavinir njóta 14 daga skilaréttar samkvæmt íslenskum neytendalögum.
Til að skilaréttur gildi þarf varan að vera:
- Ónotuð
- Óskemmd
- Í upprunalegum umbúðum
- Með öllum fylgihlutum
- Staðfesting á kaupum þarf að fylgja
Vörur sem ekki er hægt að skila
Af hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila eða skipta eftirfarandi vörum nema um galla sé að ræða:
- Nærbuxum
- Opnuðum ilmvötnum
- Opnuðum Body Mist
- Opnuðum líkamsvörum
- Opnuðum snyrtivörum
Gölluð eða röng vara
Ef vara reynist gölluð eða röng biðjum við þig að hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er.
Við leysum málið í samræmi við gildandi neytendalög, hvort sem það felur í sér skipti, viðgerð eða endurgreiðslu.
Endurgreiðslur
Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin eftir að varan hefur verið móttekin og yfirfarin.
Persónuvernd
NOMA leggur ríka áherslu á persónuvernd.
Persónuupplýsingar eru eingöngu notaðar til að afgreiða pantanir, veita þjónustu og uppfylla lagaskyldur samkvæmt gildandi persónuverndarlögum.
Greiðslukortaupplýsingar eru aldrei vistaðar hjá NOMA heldur fara í gegnum örugga greiðsluþjónustu.
Við seljum aldrei persónuupplýsingar til þriðja aðila og notum þær eingöngu í tengslum við afgreiðslu pantana, þjónustu og samskipti við viðskiptavini.
Höfundarréttur
Allt efni á noma.is, þar á meðal myndir, texti, hönnun og annað efni, er höfundarréttarvarið.
Óheimilt er að afrita eða nota efnið án skriflegs leyfis frá NOMA.
Póstlisti
Við skráningu á póstlista veitir þú samþykki fyrir því að fá upplýsingar um:
- Tilboð
- Nýjar vörur
- Fréttir
- Kynningar
Þú getur afskráð þig hvenær sem er.
Fyrirtækjaupplýsingar
NOMA ehf.
Kringlan 4-12
103 Reykjavík
Sími: 551-2001
Netfang: noma@noma.is
